Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
12. apríl 2021

Á fundi Skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar þann 19. mars sl. var sam­þykkt að kynna til­lögu að breyt­ingu á deili­skipu­lagi frí­stunda­byggð­ar við Heytjörn í sam­ræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. Skipu­lagslaga nr. 123/2010.

Breyt­ing­in felst í því að við Lyng­hóls­veg 23 er bygg­ing­ar­reit­ur að­lag­að­ur að þeg­ar byggðu sum­ar­húsi og gerð­ur er nýr bygg­ing­ar­reit­ur fyr­ir nýtt frí­stunda­hús 45 m2 að stærð. Við Lyng­hóls­veg 19 er gert ráð fyr­ir nýj­um bygg­ing­ar­reit fyr­ir að­stöðu­hús 45 m2 að stærð. Með­fylgj­andi er til­lögu­upp­drátt­ur sem sýn­ir fram­an­greind­ar breyt­ing­ar.

Í 44. gr. Skipu­lagslaga seg­ir m.a. um grennd­arkynn­ing­ar:
„Þeg­ar sótt er um bygg­ing­ar- eða fram­kvæmda­leyfi fyr­ir fram­kvæmd, sem er í sam­ræmi við land­notk­un, byggða­mynst­ur og þétt­leika byggð­ar í þeg­ar byggðu hverfi og deili­skipu­lag ligg­ur ekki fyr­ir eða um er að ræða óveru­lega breyt­ingu á deili­skipu­lagi skal skipu­lags­nefnd láta fara fram grennd­arkynn­ingu.Grennd­arkynn­ing felst í því að skipu­lags­nefnd kynn­ir ná­grönn­um sem tald­ir eru geta átt hags­muna að gæta leyf­is­um­sókn eða til­lögu að breyt­ingu á skipu­lags­áætlun og gef­ur þeim kost á að tjá sig um hana inn­an til­skil­ins frests sem skal vera a.m.k. 4 vik­ur. (…)“

Í þessu til­viki er um að ræða óveru­lega breyt­ingu á deili­skipu­lagi, sbr. 2. mgr. 43. gr. Skipu­lagslaga. Fólki er hér með gef­inn kost­ur á að koma skrif­leg­um at­huga­semd­um eða ábend­ing­um vegna áform­aðra breyt­inga á deili­skipu­lag­inu á fram­færi í Þjón­ustu­veri Mos­fells­bæj­ar að Þver­holti 2. Frest­ur til að skila inn at­huga­semd­um/ábend­ing­um er 4 vik­ur frá dag­setn­ingu frétt­ar­inn­ar, þ.e. til og með 12. maí nk. Lit­ið verð­ur svo á, að þau sem ekki gera at­huga­semd­ir séu sam­þykk breyt­ing­un­um.

Bent skal á að heim­ilt er að stytta tíma­bil grennd­arkynn­ing­ar­inn­ar, ef all­ir þátt­tak­end­ur hafa fyr­ir of­an­greind­an eindaga lýst því skrif­lega yfir með árit­un á upp­drátt, að þeir geri ekki at­huga­semd­ir við breyt­ing­arn­ar.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar eru veitt­ar hjá Önnu Mar­gréti Tóm­as­dótt­ur, verk­efna­stjóra á um­hverf­is­sviði, í síma­tíma mán. – fim kl. 10:00-11:00 eða á net­föng­in anna­mar­gret[hja]mos.is og skipu­lag[hja]mos.is.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00