Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Á fundi Skipu­lags­nefnd­ar Mos­fells­bæj­ar þann 5. mars sl. var sam­þykkt að láta fara fram grennd­arkynn­ingu í sam­ræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. Skipu­lagslaga nr. 123/2010, vegna til­lögu að breyt­ingu á deili­skipu­lagi „Efri og neðri Reykja­byggð­ar.

Breyt­ing­in felst í því að hliðra til lóðalín­um og stærð­um við Reykja­mel 10, 12 og 14. Á lóð­um 12 og 14 verð­ur heim­ilt að byggja tvö par­hús í stað tveggja ein­býl­is­húsa. Bygg­ing­armagn eykst inn­an lóð­ar úr 200 m2 á hvorri lóð í 300 m2.

Breyt­ing­ar á götu eru að yf­ir­borðs­frá­gang­ur á vest­ur­hluta göt­un­ar breikk­ar úr 3,8m í 4,8 í sam­ræmi við lóð­ar­mörk og götu­lýs­ingu.Með­fylgj­andi er til­lögu­upp­drátt­ur sem sýn­ir fram­an­greind­ar breyt­ing­ar.

Í 44. gr. Skipu­lagslaga seg­ir m.a. um grennd­arkynn­ing­ar:

„Þeg­ar sótt er um bygg­ing­ar- eða fram­kvæmda­leyfi fyr­ir fram­kvæmd, sem er í sam­ræmi við land­notk­un, byggða­mynst­ur og þétt­leika byggð­ar í þeg­ar byggðu hverfi og deili­skipu­lag ligg­ur ekki fyr­ir eða um er að ræða óveru­lega breyt­ingu á deili­skipu­lagi skal skipu­lags­nefnd láta fara fram grennd­arkynn­ingu.Grennd­arkynn­ing felst í því að skipu­lags­nefnd kynn­ir ná­grönn­um sem tald­ir eru geta átt hags­muna að gæta leyf­is­um­sókn eða til­lögu að breyt­ingu á skipu­lags­áætlun og gef­ur þeim kost á að tjá sig um hana inn­an til­skil­ins frests sem skal vera a.m.k. 4 vik­ur. (…)“

Í þessu til­viki er um að ræða óveru­lega breyt­ingu á deili­skipu­lagi, sbr. 2. mgr. 43. gr. Skipu­lagslaga. Fólki er hér með gef­inn kost­ur á að koma skrif­leg­um at­huga­semd­um eða ábend­ing­um vegna áform­aðra breyt­inga á deili­skipu­lag­inu á fram­færi í Þjón­ustu­veri Mos­fells­bæj­ar að Þver­holti 2. Frest­ur til að skila inn at­huga­semd­um/ábend­ing­um er til og með 24. apríl nk. Lit­ið verð­ur svo á, að þau sem ekki gera at­huga­semd­ir séu sam­þykk breyt­ing­un­um.

Bent skal á að heim­ilt er að stytta tíma­bil grennd­arkynn­ing­ar­inn­ar, ef all­ir þátt­tak­end­ur hafa fyr­ir of­an­greind­an eindaga lýst því skrif­lega yfir með árit­un á upp­drátt, að þeir geri ekki at­huga­semd­ir við breyt­ing­arn­ar.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar eru veitt­ar í tölvu­pósti, anna­mar­gret[hja]mos.is eða skipu­lag[hja]mos.is, eða í síma­tíma frá kl. 10:00-11:00 mánu­daga til fimmtu­daga.

Anna Mar­grét Tóm­as­dótt­ir
Verk­efna­stjóri skipu­lags­mála Mos­fells­bæj­ar

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00