Á fundi Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 26. ágúst sl. var samþykkt að grenndarkynna, í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, umsókn um byggingaráform – Arkarholt 4.
Um er að ræða leyfi til að breyta núverandi bílskúr í aukaíbúð og breyta útliti á bílskúr. Á meðfylgjandi uppdráttum er gerð nánari grein fyrir framkvæmd þeirri sem sótt er um.
Umsóknin um byggingarleyfi er í þegar byggðu hverfi þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. Hér með er gefinn kostur á að koma athugasemdum eða ábendingum á framfæri vegna þeirra framkvæmda sem sótt hefur verið um. Athugasemdir skulu vera skriflegar, ásamt helstu upplýsingum um sendanda, og merktar skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ. Einnig má senda athugasemdir í tölvupósti á skipulag[hja]mos.is.
Frestur til að skila inn athugasemdum/ábendingum er til og með 5. október 2022.
Tengt efni
Breyting á deiliskipulagi 4. áfanga Helgafellshverfis
Deiliskipulagsbreytingar: Parhús að Háeyri 1-2 og Brettavöllur við Krikaskóla
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt að kynna og auglýsa eftirfarand tillögur samkvæmt, 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagsbreyting Skeljatangi 10
Á fundi skipulagsnefndar þann 2. desember sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr skipulagslaga nr. 123/2010, umsókn eigenda Skeljatanga 10 um breytingu á deiliskipulagi.