Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
5. júlí 2022

Á fundi skipu­lags­nefnd­ar Mos­fells­bæj­ar þann 10. júní sl. var sam­þykkt að grennd­arkynna bygg­ingaráform í sam­ræmi við 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010, fyr­ir við­bygg­ingu sól­skála að Leiru­tanga 13A.

Um er að ræða leyfi til að byggja við hús 13,2 m² sól­skála til suð­urs. Á með­fylgj­andi upp­drátt­um er gerð nán­ari grein fyr­ir fram­kvæmd þeirri sem sótt er um.

Í þessu til­viki er um að ræða um­sókn um bygg­ing­ar­leyfi í þeg­ar byggðu hverfi þar sem deili­skipu­lag ligg­ur ekki fyr­ir. Hér með er hags­muna­að­il­um gef­inn kost­ur á að koma at­huga­semd­um eða ábend­ing­um á fram­færi vegna þeirra fram­kvæmda sem sótt hef­ur ver­ið um. Kynn­ing­ar­bréf og gögn voru send í nær­liggj­andi hús. At­huga­semd­ir skulu vera skrif­leg­ar, ásamt helstu upp­lýs­ing­um um send­anda, og merkt­ar skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 270 Mos­fells­bæ. Einn­ig má senda at­huga­semd­ir í tölvu­pósti á skipu­lag[hjá]mos.is.

Frest­ur til að skila inn at­huga­semd­um/ábend­ing­um er frá 5. júlí til og með 2. ág­úst 2022.

Skipu­lags­full­trúi Mos­fells­bæj­ar

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00