Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
13. júní 2024

Á fundi Skipu­lags­nefnd­ar Mos­fells­bæj­ar þann 3. maí sl. var sam­þykkt að grennd­arkynna í sam­ræmi við 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010, um­sókn eig­enda Hrafns­höfða 7.

Óskað er eft­ir breyt­ingu á notk­un hús­næð­is. Breyta á skráð­um bíl­skúr rað­húss í íveru­rými, þvotta­hús og tóm­stunda­her­bergi. Einn­ig er sótt um út­lits­breyt­ingu þar sem bíl­skúrs­hurð er skipt út fyr­ir glugga.

Hér með er gef­inn kost­ur á að koma at­huga­semd­um eða ábend­ing­um á fram­færi vegna þeirra breyt­inga sem sótt hef­ur ver­ið um. At­huga­semd­ir skulu vera skrif­leg­ar, ásamt helstu upp­lýs­ing­um um send­anda, og merkt­ar skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 270 Mos­fells­bæ. Einn­ig má senda at­huga­semd­ir í tölvu­pósti á skipu­lag[hja]mos.is.

Frest­ur til að skila inn at­huga­semd­um/ábend­ing­um er til og með 15. júlí nk.

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00