Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar þann 26. febrúar sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, umsókn eigenda Hamratúns 6.
Um er að ræða leyfi fyrir 37 m² viðbyggingu við hús til norðvesturs og samþykkt á þegar byggðri 23 m² sólstofu, samtals stækkun um 60 m². Heildarstærð húss fer úr 169,4 m² í 229,4 m².
Í þessu tilviki er um að ræða umsókn um byggingarleyfi í þegar byggðu hverfi þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. Hér með er gefinn kostur á að koma athugasemdum eða ábendingum á framfæri vegna þeirra framkvæmda sem sótt hefur verið um. Athugasemdir skulu vera skriflegar, ásamt helstu upplýsingum um sendanda og merktar skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ. Einnig má senda athugasemdir í tölvupósti á skipulag[hja]mos.is.
Frestur til að skila inn athugasemdum/ábendingum er til og með 6. apríl nk.