Á fundi Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 10. september sl. var samþykkt að grenndarkynna, í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, umsókn vegna viðbyggingar á einbýlishúsi við Akurholt 5, L 123834.
Á fundi Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 10. september sl. var samþykkt að grenndarkynna, í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, umsókn vegna viðbyggingar á einbýlishúsi við Akurholt 5, L 123834.
Um er að ræða tillögu að 40,8 m² viðbyggingu á suðvestur hlið húss. Á meðfylgjandi uppdráttum er gerð nánari grein fyrir framkvæmd þeirri sem sótt er um.
Um að ræða umsókn um byggingarleyfi í þegar byggðu hverfi þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. Hér með er gefinn kostur á að koma athugasemdum eða ábendingum á framfæri vegna þeirra framkvæmda sem sótt hefur verið um. Athugasemdir skulu vera skriflegar, ásamt helstu upplýsingum um sendanda, og merktar skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ. Einnig má senda athugasemdir í tölvupósti á skipulag[hja]mos.is.
Frestur til að skila inn athugasemdum/ábendingum er frá 23. nóvember til og með 22. desember nk.
Tengt efni
Grenndarkynning vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Engjaveg 22
Á fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 11. maí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu varðandi Engjaveg 22.
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við atvinnuhúsnæði að Flugumýri 6
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 3. maí 2023 sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, byggingarleyfisumsókn eigenda atvinnuhúsnæðis að Flugumýri 6, 0104.
Nýjar deiliskipulagsáætlanir - Frístundalóðir milli Selvatns og Nesjavallavegar
Mosfellsbær auglýsir nú skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eftirfarandi tillögur að deiliskipulagsáætlunum: