Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
18. október 2023

Á af­greiðslufundi Skipu­lags­full­trúa Mos­fells­bæj­ar þann 17. októ­ber sl. var sam­þykkt að grennd­arkynna í sam­ræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010, um­sókn eig­enda Mark­holts 13, Mos­fells­bæ.

Sótt er um leyfi fyr­ir stækk­un bíla­geymslu og húss/her­bergja til suð­urs sem og stækk­un stofu til vest­urs. Bíl­geymsla stækk­ar um 31,9 m² og verð­ur 63,9 m². Íbúð stækk­ar um 31,3 m² og verð­ur sam­tals 184,4 m². Byggð­ur verð­ur 15 m² garðskúr, þetta í sam­ræmi við gögn dags. 26.09.2023.

Í þessu til­viki er um að ræða um­sókn um bygg­ing­ar­leyfi í þeg­ar byggðu hverfi þar sem deili­skipu­lag ligg­ur ekki fyr­ir. Hér með er gef­inn kost­ur á að koma at­huga­semd­um eða ábend­ing­um á fram­færi vegna þeirra fram­kvæmda sem sótt hef­ur ver­ið um. At­huga­semd­ir skulu vera skrif­leg­ar, ásamt helstu upp­lýs­ing­um um send­anda, og merkt­ar skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 270 Mos­fells­bæ. Einn­ig má senda at­huga­semd­ir í tölvu­pósti á skipu­lag[hja]mos.is.

Frest­ur til að skila inn at­huga­semd­um/ábend­ing­um er til og með 17. nóv­em­ber 2023.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00