Á fundi Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 24. júní 2022, var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, umsókn eigenda Arnartanga 44, Mosfellsbæ.
Um er að ræða þegar byggðar viðbyggingar úr timbri og gleri, garðskála, geymslu og viðbyggingu við íbúðarhluta húss, samtals 42,3 m².
Meðfylgjandi er uppdráttur sem sýnir umræddar viðbyggingar.
Um er að ræða umsókn um byggingarleyfi í þegar byggðu hverfi þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. Hér með er gefinn kostur á að koma athugasemdum eða ábendingum á framfæri vegna þeirra framkvæmda sem sótt hefur verið um. Athugasemdir skulu vera skriflegar, ásamt helstu upplýsingum um sendanda, og merktar skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ. Einnig má senda athugasemdir í tölvupósti á skipulag[hja]mos.is.
Frestur til að skila inn athugasemdum/ábendingum er til og með 3. ágúst 2022.