Molta frá jarðgerðarstöð Sorpu Gaju verður í boði án endurgjalds fyrir íbúa frá og með fimmtudeginum 16. maí og meðan birgðir endast á horni Þverholts og Álfatanga. Moltan er í boði í framhaldi af hreinsunarátakinu sem hefur verið í gangi undanfarið í Mosfellsbæ.
Moltan er ætluð til notkunar utan húss, hún hentar vel til notkunar á akra, lóðir, græn svæði í þéttbýli, beð og matjurtargarða. Moltan er sterk og bein snerting óblandaðrar moltu við rætur plantna er ekki æskileg.