26 hressir krakkar hafa skrifað, skrafað og lesið upp á þriggja daga námskeiði á vegum Bókasafnsins undir stjórn Gerðar Kristnýjar.
Gerður Kristný hefur greinilega unnið hug og hjörtu krakkanna og áhugi þeirra er mikill.
Leynast ef til vill Nóbelsverðlaunaskáld framtíðarinnar í hópnum?