Í dag fimmtudaginn 26. ágúst mun kranabíll vera við störf við hljóðveggi við Vesturlandsveg á akrein sem liggur til suðurs frá Lágafellstorgi og að strætóvasa.
Áætlað er að framkvæmdirnar við Vesturlandsveg standi frá kl. 13:00 til kl. 16:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.
Viðeigandi merkingar verða settar upp samkvæmt merkingarplani.
Tengt efni
Framkvæmdir við sparkvöll hjá Varmárskóla að hefjast
Framkvæmdir við nýjan upphitaðan sparkvöll á skólalóð Varmárskóla hefjast í vikunni og eru þær í höndum fyrirtækisins Vargur ehf.
Viðgerð á hraðahindrun - Bogatangi
Framkvæmdir við leikskólann Reykjakot