Fimmtudaginn 2. maí, kl. 20 verður haldið fræðslukvöld í Krikaskóla um læsi og grunnþætti náms.
Fyrirlesari verður Hermundur Sigmundsson, prófessor í lífeðlisfræðilegri sálfræði við Háskólann í Þrándheimi í Noregi.
Hermundur mun fjalla um eftirfarandi þætti í fyrirlestri sínum:
- færni og hæfileika
- þróun og þroska
- nám
- grunnfærni í námi, lestur og stærðfræði sem undirstöður alls náms
- gildi hreyfingar
Þá fjallar Hermundur um hugmyndir sínar um nýtt skipulag skóladags, sem gæti bætt grunnfærni eins og lestur og stærðfræði, dregið úr sérkennslu og gert það að verkum að fleiri ná að ljúka framhaldsskólum.
Skólaskrifstofa hvetur alla sem áhuga hafa á skólamálum í Mosfellsbæ, stjórnendur, kennara, foreldra og aðra í skólasamfélaginu til þess að hlýða á nýjar og áhugaverðar hugmyndir sem nýst geta í skólastarfi í dag og í framtíðinni.