Skógræktarfélag Mosfellsbæjar og Mosfellsbær efna til fræðslufundar um skógræktarmál þriðjudaginn 7. maí kl. 17:30.
Fundurinn verður haldinn í sal við hlið Bókasafns Mosfellsbæjar í Kjarna, þar sem þjónustuver Mosfellsbæjar var áður til húsa.
Kristinn H. Þorsteinsson, garðyrkjufræðingur flytur erindi um ræktun og klippingar á berjarunnum. Berjarunnar, einkum rauðrifs og sólber hafa í gegnum tíðina notið vinsælda í garðrækt. Þó runnarnir séu auðræktaðir er ekki á vísan að róa með uppskeru, en margir þættir geta t.d. haft áhrif á blómgun, aldimyndun og annan þroska berjarunna þannig að uppskera reynist rýrari en vonir stóðu til.
Björn Traustason frá Skógræktarfélagi Mosfellsbæjar og í samstarfsnefnd skógræktarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu segir í stuttu máli frá vinnu við hönnun á Græna stígnum innan Græna trefilsins á höfuðborgarsvæðinu og hugmyndum sem komið hafa upp um legu stígsins í Mosfellsbæ.
Öll áhugasöm eru boðin hjartanlega velkomin og heitt kaffi á könnunni.
Tengt efni
Er líða fer að jólum í Mosfellsbæ
Fjöldi viðburða verða í boði í Mosfellsbæ í aðdraganda jóla.
Syndum, landsátak í sundi hefst 1. nóvember 2024
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. – 30. nóvember 2024.
Vel sóttur fundur um Álafosskvos