Hugsjónir eru akkeri í stormi – Fræðsludagur Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar verður haldinn 24. ágúst.
Dagskrá:
8:00 – 8:30 Mæting
Morgunmatur í boði Skólaskrifstofu
8:30 – 10:00 Við erum öll áhöfn á sama bát
Vilmar Pétursson ráðgjafi hjá Capacent segir frá pólafaranum Ernest Shackleton sem fór með áhöfn sína þvert yfir suðurpólinn við afar erfiðar aðstæður eftir að skip hans Endurance strandaði snemma á síðustu öld.
10:00 – 10:30 Kaffihlé
10:30 Fræðsluerindi og fundir haldnir í skólunum
- Sameiginlegir fræðslu- og umræðufundir grunnskólakennara
- Hvers vegna eru árin sem enginn man svona mikilvæg í lífi hvers einstaklings? Fyrirlestur Ingunnar Stefánsdóttur, leikskólakennara, um mikilvægi leikskólastarfs með yngstu börnunum.
- Hvers vegna er nauðsynlegt að meta skólastarf og hvernig eigum við að meta það? Helga Dís Sigurðardóttir, matsfræðingur, fjallar um mat á skólastarfi.
- Myndum við vilja að allir væru eins? (PALS)
Fyrirlestur/smiðja um menningu og umburðarlyndi gagnvart fjölbreytileika með Huldu K. Daníelsdóttur, kennsluráðgjafa.
13:00-16:30 Vinnustofur/smiðjur í skólunum
- Að vinna í anda Hjallastefnunnar, starfshættir, markmið og leiðir
- Að vinna í anda Reggiostefnunnar
- Samþætting leik- og grunnskóla: Hugmyndafræði Krikaskóla
- Skapandi starf í leikskóla, ljós og skuggi
- Vettvangs- og fræðsluferðir í eftirtalda leikskóla:
- Rauðhóll, Sandavaði 7
Náttúruskóli, fjögurra deilda skóli fyrir 88 börn - Garðaborg Bústaðavegi 81
Einingakubbaskóli, tveggja deilda skóli fyrir 54 börn - Hlíðarendi Laugarásvegi 77
Könnunarleikur og yngri börn, tveggja deilda skóli fyrir 24 börn
- Rauðhóll, Sandavaði 7
- Að bæta sig – um markmið, sjálfstraust og jákvæð viðhorf – Einar Gylfi Jónsson sálfræðingur
- Vinnufundir og skipulag í Lágafellsskóla