Í tilefni sumarkomu ætla Mosverjar að vera með litla tindaáskorun fyrir börnin og fjölskyldur þeirra.
Sigraðu tindinn er létt ganga á Lágafellið en nánast allir geta sigrað þann tind. Leiðin er stikuð og vel merkt.Börnin fá svo viðurkenningarskjal og glaðning þegar komið er niður á ný.
Áskorunin verður opin frá kl. 10:00 – 16:00 og byrjar og endar á bílastæði Lágafellskirkju. Þar verða skátar til að leiðbeina og einnig veita viðurkenningar þegar komið er niður aftur.
Njótum útivistar saman og fögnum sumri.