Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
31. október 2018

Fjár­hags­áætlun Mos­fells­bæj­ar fyr­ir árið 2019 og næstu þrjú ár þar á eft­ir er lögð fram til fyrri um­ræðu í bæj­ar­stjórn í dag.

Fjár­hags­áætlun Mos­fells­bæj­ar fyr­ir árið 2019 og næstu þrjú ár þar á eft­ir er lögð fram til fyrri um­ræðu í bæj­ar­stjórn í dag.

Fjár­hags­áætl­un­in ger­ir ráð fyr­ir að tekj­ur nemi 12.224 m.kr., gjöld fyr­ir fjár­magnsliði nemi 11.020 m.kr. og fjár­magnslið­ir 620 m.kr.

Áætl­un­in ger­ir ráð fyr­ir að rekstr­araf­gang­ur verði 559 m.kr. Áætlað er að fram­kvæmd­ir nemi 1.820 m.kr. og að íbú­um fjölgi um tæp­lega 5 % milli ára.

Áætl­un­in ger­ir ráð fyr­ir að fram­legð verði 13 % og að veltufé frá rekstri verði já­kvætt um 1.352 m.kr. eða um 11 %. Gert er ráð fyr­ir að skuld­ir sem hlut­fall af tekj­um muni lækka og að skulda­við­mið skv. sveita­stjórn­ar­lög­um verði 99,5 % í árslok 2019.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar veita:
Har­ald­ur Sverris­son bæj­ar­stjóri í síma 525-6700
Arn­ar Jóns­son, for­stöðu­mað­ur þjón­ustu- og sam­skipta­deild­ar, s. 840-1244, arn­ar@mos.is

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00