Nú er að ljúka steypuvinnu við endurnýjun gangstétta í Álfholti milli Arkarholts og Þverholts sem er hluti af verkefninu endurnýjun í eldri hverfum.
Í framhaldi verður farið í endurnýjun gangstéttar í norðurhluta Langatanga á milli Álfatanga og Skeiðholts.
Á sama tíma í tengslum við gatnagerð á nýrri götu við Hamraborg er verið að vinna við endurnýjun á gangstétt frá Bogatanga að Olís.
Beðist er velvirðingar á þeirri röskun sem þessar framkvæmdir kunni að valda og eru íbúar beðnir um að sýna framkvæmdaraðilum tillitssemi og þolinmæði.