Einn fylgifiskur eldgoss er gasmengun sem getur verið hættuleg og haft heilsufarsleg áhrif, sér í lagi á þá sem eru viðkvæmir fyrir, með astma eða aðra undirliggjandi lungna- og/eða hjartasjúkdóma.
Á vef Veðurstofu Íslands er á einum stað hægt að nálgast brennisteinmengunarspá og veðurspá auk vísunar á viðeigandi staði sem veita mikilvægar upplýsingar um loftgæði í rauntíma, ráðleggingar Umhverfisstofnunar vegna gasmengunar og ráðleggingar Embætti Landlæknis vegna heilsufarslegra áhrifa gasmengunar.
Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum og leiðbeiningum frá Almannavörnum.
Tengt efni
Talsverð mengun víða á höfuðborgarsvæðinu
Eldgos á Reykjanesi - Mikil gasmengun á svæðinu
Eldgos hófst um kl. 16:40 við Litla-Hrút í gær.
Ítrekun á viðvörun vegna gasmökks
Veðurstofan vill ítreka ábendingar til almennings frá því í gær vegna gosmóðu á höfuðborgarsvæðinu.