Undanfarið hafa fulltrúar Umhverfisstofnunar og Mosfellsbæjar unnið að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Álafoss og Tungufoss.
Drög að báðum áætlum hafa nú verið lögð fram til kynningar á vef Umhverfisstofnunar. Stjórnunar- og verndaráætlun er ætlað að vera stefnumótandi skjal, unnið í samvinnu við rétthafa lands og sveitarfélag og er hugsað sem stjórntæki til að móta framtíðarsýn svæðisins og auka vernd þess. Markmiðið með gerðinni er að leggja fram stefnu um verndun náttúruvættanna og hvernig viðhalda skuli verndargildi svæðisins í sem bestri sátt. Áætlunin gildir til 10 ára. Henni fylgir aðgerðaáætlun til þriggja ára sem verður endurskoðuð árlega.
Frestur til að skila inn ábendingum og athugasemdum varðandi tillögurnar er til og með 12. ágúst 2020.
Hægt er að skila inn ábendingum og athugasemdum á vef Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is, eða með því að senda póst til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.