Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
24. ágúst 2018

Kynn­ing á deili­skipu­lags­lýs­ingu: Deili­skipu­lag Vest­ur­lands­veg­ar, frá Skar­hóla­braut að Reykja­vegi, í Mos­fells­bæ.

Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með til kynn­ing­ar deili­skipu­lags­lýs­ingu, skv. 40. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010: Fyr­ir gerð deili­skipu­lags yfir Vest­ur­landsveg og veg­helg­un­ar­svæði frá gatna­mót­um við Skar­hóla­braut að gatna­mót­um við Reykja­veg. Lengd skipu­lags­svæð­is er tæp­lega 2,5 km.

Meg­in við­fangs­efni við deili­skipu­lags­gerð­ina er m.a. að af­marka nýja legu Vest­ur­lands­veg­ar (tvær ak­rein­ar í sitt­hvora átt með mið­eyju) og nú­ver­andi teng­ing­ar. Skil­greina ný und­ir­göng, veg­helg­un­ar­svæði fyr­ir mögu­leg mis­læg gatna­mót, göngu-, hjóla- og reiðstíga með fram Vest­ur­lands­vegi og tengsl deili­skipu­lags við nær­liggj­andi svæði.

Í deili­skipu­lags­lýs­ingu kem­ur lög­um sam­kvæmt fram hvaða áhersl­ur sveit­ar­stjórn hef­ur við skipu­lags­gerð­ina og upp­lýs­ing­ar um for­send­ur og fyr­ir­liggj­andi stefnu og fyr­ir­hug­að skipu­lags­ferli, s.s. um kynn­ingu og sam­ráð gagn­vart íbú­um og öðr­um hags­muna­að­il­um. Þau sem vilja kynna sér mál­ið nán­ar vin­sam­leg­ast haf­ið sam­band við skipu­lags­full­trúa.

Deili­skipu­lags­lýs­ing ligg­ur frammi í þjón­ustu­veri Mos­fells­bæj­ar á 2. hæð Þver­holts 2, 270 Mos­fells­bæ.

At­huga­semd­um og ábend­ing­um varð­andi lýs­ing­una skulu vera skrif­leg­ar og má skila þeim til skipu­lags­full­trúa Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 270 Mos­fells­bæ, eða í tölvu­pósti til und­ir­rit­aðs. Æski­legt er að þær ber­ist fyr­ir 15. sept­em­ber 2018.

28. ág­úst 2018
Skipu­lags­full­trúi Mos­fells­bæj­ar
olaf­urm@mos.is

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00