Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
25. september 2018

Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með til kynn­ing­ar deili­skipu­lags­lýs­ingu, skv. 40. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010: Fyr­ir gerð deili­skipu­lags sem nær yfir iðn­að­ar­lóð fyr­ir vatns­geymi ásamt að­komu­vegi frá Skar­hóla­braut og lögn­um að og frá vatns­geymi í aust­ur­hlíð­um Úlfars­fells.

Kynn­ing á deili­skipu­lags­lýs­ingu: Deili­skipu­lag fyr­ir vatns­geymi í Úlfars­felli.

Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með til kynn­ing­ar deili­skipu­lags­lýs­ingu, skv. 40. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010:

Fyr­ir gerð deili­skipu­lags sem nær yfir iðn­að­ar­lóð fyr­ir vatns­geymi ásamt að­komu­vegi frá Skar­hóla­braut og lögn­um að og frá vatns­geymi í aust­ur­hlíð­um Úlfars­fells.

Meg­in markmið með gerð deili­skipu­lags­ins er að koma á form­legu deili­skipu­lagi þann­ig að fram­kvæmd­ir við upp­bygg­ingu á vatns­geym­in­um geti haf­ist og lausn verði fund­in á lág­um þrýst­ingi á neyslu­vatni í Mos­fells­bæ.

Á skipu­lags­svæð­inu er einn­ig opið svæði til sér­stakr­ar nota, göngu­leið­ir og skóg­rækt­ar­svæði með reiðstíg sem ligg­ur upp á Úlfars­fell.

Í deili­skipu­lags­lýs­ingu kem­ur lög­um sam­kvæmt fram hvaða áhersl­ur sveit­ar­stjórn hef­ur við skipu­lags­gerð­ina og upp­lýs­ing­ar um for­send­ur og fyr­ir­liggj­andi stefnu og fyr­ir­hug­að skipu­lags­ferli, s.s. um kynn­ingu og sam­ráð gagn­vart íbú­um og öðr­um hags­muna­að­il­um. Þeir sem vilja kynna sér mál­ið nán­ar vin­sam­leg­ast haf­ið sam­band við skipu­lags­full­trúa.

Skrif­leg­um at­huga­semd­um og ábend­ing­um varð­andi lýs­ing­una má skila til þjón­ustu­vers­ins eða til und­ir­rit­aðs fyr­ir 22. októ­ber 2018.

29. sept­em­ber 2018
Skipu­lags­full­trúi Mos­fells­bæj­ar

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00