Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
10. febrúar 2021

Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með nýtt deili­skipu­lag fyr­ir frí­stunda­hús úr landi Mið­dals I, skv. 1. mgr. 41. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010.

Til­lag­an sýn­ir nýtt deili­skipu­lag fyr­ir tvö frí­stunda­hús að Heytjarn­ar­heiði L125202 og L125204, 525-F. Lóð­irn­ar eru 10.871 m2 og 17.264 m2. Í sam­ræmi við að­al­skipu­lag Mos­fells­bæj­ar má byggja eitt frí­stunda­hús og gesta­hús á lóð sam­an­lagt mest 200 m2 á hvorri lóð, há­marks­hæð er 6 m. Að­koma er um Lyng­hóls­veg.

Gögn verða einn­ig að­gengi­leg á Upp­lýs­inga­torgi, Þver­holti 2. Til­lag­an hef­ur ver­ið aug­lýst í Mos­fell­ingi og Lög­birt­ing­ar­blað­inu. Þeir sem vilja geta kynnt sér til­lög­una og gert við hana at­huga­semd­ir, að­r­ir teljast sam­þykk­ir. At­huga­semd­ir skulu vera skrif­leg­ar, ásamt helstu upp­lýs­ing­um um send­anda, og þær skulu merkt­ar skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 270 Mos­fells­bær, eða berast í tölvu­pósti á skipu­lag[hja]mos.is.

At­huga­semda­frest­ur er frá 11. fe­brú­ar til og með 28. mars 2021.

Skipu­lags­full­trúi Mos­fells­bæj­ar
11. fe­brú­ar 2021

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00