Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
4. október 2017

Kynn­ing á verk­efn­is­lýs­ing­um: Breyt­ing­ar á Að­al­skipu­lagi Mos­fells­bæj­ar 2011-2030. Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með til kynn­ing­ar 3 verk­efn­is­lýs­ing­ar skv. 30.gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010:

Kynn­ing á verk­efn­is­lýs­ing­um:
Breyt­ing­ar á Að­al­skipu­lagi Mos­fells­bæj­ar 2011-2030
Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með til kynn­ing­ar 3 verk­efn­is­lýs­ing­ar skv. 30.gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010:

Frí­stunda­svæði í suð­ur­hluta Mos­fells­bæj­ar:
Breyt­ing­in snýr að yf­ir­litstöflu nokk­urra svæða fyr­ir frí­stunda­byggð í kafla 4.11 í grein­ar­gerð að­al­skipu­lags Mos­fells­bæj­ar 2011-2030. Einn­ig er áform­að að skil­greina svæði 533-F í yf­ir­litstöflu sem láð­ist að gera í að­al­skipu­lagi Mos­fells­bæj­ar 2011-2030.

Stækk­un at­hafna­svæð­is í Flugu­mýri/Desja­mýri:
Breyt­ing­in fel­ur í sér stækk­un at­hafna­svæð­is í Flugu­mýri/Desja­mýri norð­an Skar­hóla­braut­ar (svæði 411-A). Skort­ur er á lóð­um fyr­ir at­hafn­a­starf­semi í sveit­ar­fé­lag­inu og með stækk­un at­hafna­svæð­is er brugð­ist við eft­ir­spurn eft­ir at­hafna­lóð­um. Áform­að er að stækka at­hafna­svæði (411-A) til aust­urs og minnka íbúð­ar­svæði (407-íb) sem því nem­ur.

Stök íbúð­ar­hús í Mos­fells­bæ:
Breyt­ing­in fel­ur í sér breyt­ingu á skipu­lags­ákvæð­um stakra íbúð­ar­húsa á óbyggð­um svæð­um (Ó) og land­bún­að­ar­svæð­um (L) sem sett eru fram í kafla 4.2 í grein­ar­gerð að­al­skipu­lags­ins. Breyt­ing­in nær að­eins til stakra íbúð­ar­húsa í Mos­fells­dal þar sem heim­ilt verð­ur að byggja ann­að hús til við­bót­ar því sem fyr­ir er á við­kom­andi land­ar­eign/lóð.

Í verk­efna­lýs­ingu kem­ur lög­um sam­kvæmt fram hvaða áhersl­ur sveit­ar­stjórn hef­ur við skipu­lags­gerð­ina og upp­lýs­ing­ar um for­send­ur og fyr­ir­liggj­andi stefnu og fyr­ir­hug­að skipu­lags­ferli, s.s. um kynn­ingu og sam­ráð gagn­vart íbú­um og öðr­um hags­muna­að­il­um. Þeir sem viðja kynna sér mál­ið nán­ar vin­sam­leg­ast haf­ið sam­band við skipu­lags­full­trúa.

Verk­efna­lýs­ing ligg­ur frammi í þjón­ustu­veri Mos­fells­bæj­ar á 2. Hæð ver­holts 2, 270 Mos­fells­bæ og á heima­síðu bæj­ar­ins á slóð­inni:
mos­fells­ba­er.is/skipu­lagsauglys­ing­ar

At­huga­semd­um og ábend­ing­um varð­andi lýs­ing­una má skila til þjón­ustu­vers­ins eða til und­ir­rit­aðs og er æski­legt að þær ber­ist fyr­ir lok októ­ber 2017.

7. ok­bóber 2017,
Skipu­lags­full­trúi Mos­fells­bæj­ar

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00