Mosfellsbær auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi í Laugabólslandi vegna Egilsmóa 12, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Um er að ræða breyting á deiliskipulag af lóðinni Egilsmói 12, L-125282. Breytingin felur í sér að gerður er stærri byggingarreitur á lóðinni. Innan nýs byggingarreits er heimilt að stækka núverandi íbúðarhús og hesthús og byggja eitt auka hús – gestahús sem má vera allt að 80 m2 að grunnfleti, á einni hæð með risi. Hámarks mænishæð gestahús verði 7,5 m, sbr. gildandi skilmála fyrir íbúðarhús á lóðinni. Nýr byggingarreitur er afmarkaður 20 m frá Suðurá, 7 m frá lóðarmörkum til austurs og 3 m frá lóðarmörkum til norðurs.
Tillagan var auglýst í Mosfellingi og Lögbirtingablaðinu. Hún er einnig aðgengileg á Upplýsingatorgi, Þverholti 2, svo þeir sem vilja geta kynnt sér hana og gert athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar, ásamt helstu upplýsingum um sendanda, og merktar skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ. Einnig má senda athugasemdir í tölvupósti á skipulag@mos.is.
Athugasemdafrestur er frá 13. maí 2021 til og með 30. júní 2021.
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar