Félagar úr björgunarsveitinni Kyndli heimsóttu á dögunum 1. bekk Krikaskóla og færðu öllum börnunum endurskinsvesti að gjöf.
Slysavarnafélagið Landsbjörg, í samvinnu við góð fyrirtæki gefur þessi vesti til að nota í vettvangsferðum. Um 4500 börn eru í árganginum á landinu öllu. Þema verkefnisins er Allir öruggir heim því öll eigum við rétt á því að koma örugg heim. Á það ekki síst við um þau sem eru að hefja skólagöngu sína.
Á myndinni má sjá Adelu og Einar frá Kyndli ásamt börnunum og Svövu Björk kennara.
Tengt efni
Nóg um að vera í Mosfellsbæ í sumar
Opnað fyrir nýtingu frístundaávísana allt árið
Barnadjasshátíð í Mosfellsbæ 20. - 23. júní 2024
Dagana 20. – 23. júní verður hátíðin Barnadjass í Mosó haldin í annað sinn.