Bókasafn Mosfellsbæjar opnaði í gær, miðvikudaginn 18. nóvember.
Vegna tilskipana um sóttvarnir takmarkast fjöldi við 10 manns til og með 1. desember. Gestir eru hvattir til að sinna erindum sínum hratt og skilmerkilega svo fleiri komist að. Lessvæði er lokað og viðburðum hefur verið frestað.
Athugið að grímuskylda er í safninu. Einstaklingar með hita, hósta, kvef og/eða önnur flensueinkenni haldi sig heima.
Öll gögn hafa verið endurnýjuð til 20. nóvember og engar sektir reiknast á því tímabili sem safnið hefur verið lokað.
Áfram verður hægt að panta safngögn sækja við inngang safnsins.
Tengt efni
Stafræn bókasafnskort í Mosfellsbæ
Lína Langsokkur mætti óvænt á sögustund
Það vakti mikla lukku í gær þegar Lína Langsokkur, Hr. Níels, Anna og Keli mættu óvænt á sögustund í Bókasafni Mosfellsbæjar.
Safnanótt 2023 með pompi og pragt
Safnanótt var haldin hátíðleg í Bókasafni Mosfellsbæjar föstudaginn 3. febrúar.