Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
24. maí 2012

Bæj­ar­há­tíð Mos­fells­bæj­ar Í tún­inu heima verð­ur hald­in 24. – 26. ág­úst.

Viltu taka þátt? Áhuga­sam­ir hafi sam­band við Daða Þór Ein­ars­son í síma 663-9225.

Bæj­ar­há­tíð Mos­fells­bæj­ar Í tún­inu heima er hald­in síð­ustu helg­ina í ág­úst ár hvert. Há­tíð­in er sann­kölluð fjöl­skyldu­há­tíð sem stend­ur í þrjá daga og geta all­ir fund­ið eitt­hvað við sitt hæfi.

Fjöl­breytt­ir menn­ing­ar­við­burð­ir eru í boði, tón­leik­ar, mynd­lista­sýn­ing­ar, úti­mark­að­ir og íþrótta­við­burð­ir svo fátt eitt sé nefnt. Há­tíð­in hefst form­lega á föstu­dags­kvöldi á mið­bæj­ar­torgi Mos­fells­bæj­ar það­an sem geng­ið er í karni­val­skrúð­göngu í svo­kall­að­ar Ull­ar­nes­brekk­ur milli Var­már og Köldu­kvísl­ar þar sem varð­eld­ur er tendr­að­ur og brekku­söng­ur fer fram.

Hápunkt­ur há­tíð­ar­inn­ar er á laug­ar­dags­kvöld þeg­ar stór­tón­leik­ar fara fram á mið­bæj­ar­torgi og stíga ávallt lands­þekkt­ar hljóm­sveit­ir ásamt heima­mönn­um á svið. Sér­stök barnadagskrá er í upp­hafi tón­leik­anna.

Mark­að­ir eru um all­an bæ, jafnt inni­mark­að­ir í íþrótta­hús­inu að Varmá, sem og úti­mark­að­ir í Ála­fosskvos og Mos­fells­dal.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00