Spáð er asahláku um helgina og þar sem mikill snjór og klaki er í bænum er hætta á vatnstjónum og hálkuslysum.
Mikilvægt er að bæjarbúar séu meðvitaðir um þá hættu sem skapast geti við aðstæður sem slíkar og bregðist við henni.
Starfsmenn bæjarins munu næstu daga hreinsa frá niðurföllum í götum og við stofnanir og ennfremur salta og sandbera götur og stíga eftir snjómokstursáætlun.
Hjá Þjónustumiðstöð (áhaldahúsi) bæjarins, Völuteig 15, geta íbúar fengið sand til að bera á plön og stéttar við heimahús.
Tengt efni
Mikilvægt að moka frá niðurföllum
Hlákutíð framundan samkvæmt veðurspá
Vetrarþjónusta
Siðustu vikur hafa bæði verktakar og starfsfólk þjónustustöðvar verið kölluð út nánast daglega til að sinna verkefnum tengdum snjómokstri eða hálkuvörnum og starfsmenn þjónustustöðvar verið á vaktinni allan sólahringinn.