Veðurstofa Íslands hefur gefið út rauða veðurviðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið vegna ofsaveðurs á morgun, fimmtudaginn 6. febrúar, frá kl. 08:00 – 13:00. Fólk er hvatt til halda sig heima á meðan óveðrið gengur yfir á morgun og vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu.
- Bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar verða lokaðar til kl. 13:00 en svarað verður í síma 525-6700 frá kl. 08:00.
- Bókasafn, íþróttamiðstöðvar og sundlaugar Lágafelli og að Varmá verða lokaðar til kl. 13:00
Skólahald
- Leik- og grunnskólar verða opnir fyrir þau sem nauðsynlega þurfa en mönnun verður í lágmarki. Í neyð þarf að tilkynna skólastjórnendum um komu barns með tölvupósti.
- Miðað við veðurspá má gera ráð fyrir að hægt verði að byrja almennt skipulagt starf í kringum kl. 13:00, það getur þó orðið fyrr ef veður gengur hratt niður.
- Skólaakstur fellur niður en reikna má með að frístundaakstur verði eftir hádegi og heimakstur kl. 16:00.
Þjónusta velferðarsviðs
- Heimilisþrif falla niður fyrir hádegi en önnur nauðsynleg heimaþjónusta heldur sér eins og hægt er.
- Félagsstarf fellur niður fyrir hádegi.
- Gera má ráð fyrir seinkun á heimsendum mat vegna veðurs.
- Akstursþjónusta fatlaðs fólks og eldri borgara verður til rúmlega kl. 8:00 en hlé verður gert á akstri meðan rauð viðvörun gildir. Gera má ráð fyrir truflunum á akstri fram eftir degi meðan viðvaranir eru appelsínugular.
Upplýsingar verða birtar á vef og samfélagsmiðlum Mosfellsbæjar eftir því sem við á.
Veðurspá frá Veðurstofu Íslands
6. febrúar kl. 08:00 – 13:00
Suðvestan stormur eða rok (Rautt ástand)
Suðvestan 28-33 m/s og hvassara í vindstrengjum. Talsverð rigning á köflum. Foktjón mjög líklegt og það getur verið hættulegt að vera á ferð utandyra. Ekkert ferðaveður.
Tilkynning frá Aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins
Athygli er vakin á því að á morgun, fimmtudaginn 6. febrúar, hefur verið gefin út rauð viðvörun vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu og gildir hún frá kl. 8-13. Fólk er hvatt til að halda sig heima á meðan óveðrið gengur yfir á morgun og vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu.
Á fimmtudag verður röskun á skólastarfi. Grunn- og leikskólar verða þó ekki lokaðir, en halda úti lágmarksmönnun. Í ítrustu neyð þarf að tilkynna skólastjórnendum um komu barns með tölvupósti.
Announcement from the Emergency Control Centre for the Greater Reykjavik Area
Please note that a red weather warning has been issued for the Greater Reykjavik Area, effective from 08:00 until 13:00 on Thursday, 06 February.
PEOPLE ARE URGED TO STAY AT HOME UNTIL THE STORM PASSES OVER TOMORROW AND NOT TO BE OUT UNLESS ABSOLUTELY NECESSARY.
Tomorrow, Thursday, there will be disruptions to school operations. Kindergartens and primary schools will remain open but with limited staffing. In such cases, parents should notify the school administrators by email if a child is coming to school.
Ogłoszenie Sztabu Zarządzania Kryzysowego Regionu Stołecznego
Prosimy pamiętać, że na jutro czwartek 6 lutego, został wydany czerwony alert pogodowy dla regionu stołecznego, obowiązujący od godz. 8:00 do 13:00.
ZALECA SIĘ POZOSTANIE W DOMU PODCZAS PRZECHODZENIA FRONTU BURZOWEGO I UNIKANIE PODRÓŻY, JEŚLI NIE SĄ ONE ABSOLUTNIE KONIECZNE.
W czwartek wystąpią zakłócenia w funkcjonowaniu szkół. Szkoły podstawowe i przedszkola pozostaną otwarte, ale będą działać przy ograniczonym składzie personelu.
W przypadku skrajnych sytuacji awaryjnych i konieczności przyprowadzenia dziecka do placówki, opiekunowie muszą powiadomić administrację szkoły zawczasu drogą emailową o planowanej obecności dziecka.
Tengt efni
Fyrsta skóflustunga fyrir íbúðir Bjargs íbúðaleigufélags í Mosfellsbæ
Samstarfssamningar Mosfellsbæjar við íþrótta- og tómstundafélög endurnýjaðir
Samningarnir gilda frá árinu 2025 til loka ársins 2027.
Álagning fasteignagjalda 2025