Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Á fundi bæj­ar­stjórn­ar Mos­fells­bæj­ar þann 25. júní 2025 var sam­þykkt að fækka fasta­nefnd­um bæj­ar­ins um þrjár, úr sjö í fjór­ar. Auk þess var sam­þykkt að fækka áheyrn­ar­full­trú­um í nefnd­um bæj­ar­ins og af­tengja laun bæj­ar­full­trúa við þing­far­ar­kaup. Þá var sam­þykkt að laun bæj­ar­stjóra fylgi launa­hækk­un­um á vinnu­mark­aði í stað launa­vísi­tölu.

Með breyt­ingu á nefnd­um er stefnt að auk­inni skil­virkni í stjórn­sýsl­unni og hag­ræð­ingu.

Til­lag­an fel­ur í sér sam­ein­ingu skipu­lags­nefnd­ar og um­hverf­is­nefnd­ar í eina nefnd und­ir heit­inu um­hverf­is- og skipu­lags­nefnd. Markmið með sam­ein­ingu nefnd­anna er að ná fram betri sam­fellu í stefnu­mót­un á sviði skipu­lags­mála og um­hverf­is­mála og gera stjórn­sýslu skil­virk­ari.

Þá eru íþrótta- og tóm­stunda­nefnd og menn­ing­ar- og lýð­ræð­is­nefnd sam­ein­að­ar í eina nefnd sem beri heit­ið menn­ing­ar, íþrótta og lýð­heilsu­nefnd. Verk­efni á sviði lýð­ræð­is­mála verði felld und­ir bæj­ar­ráð. Markmið með þess­ari breyt­ingu er að til verði einn öfl­ug­ur vett­vang­ur fyr­ir þau mál­efna­svið sem heyra und­ir menn­ing­ar-, íþrótta- og lýð­heilsu­svið sem var sett á lagg­irn­ar í kjöl­far stjórn­kerf­is­breyt­inga haust­ið 2023.

Loks verði at­vinnu- og ný­sköp­un­ar­nefnd lögð af og verk­efni henn­ar færð und­ir bæj­ar­ráð sem fylg­ir eft­ir nýrri at­vinnu­stefnu Mos­fells­bæj­ar sem var sam­þykkt í bæj­ar­stjórn í lok árs 2024. Með því að færa at­vinnu­málin í bæj­ar­ráð er lögð áhersla á mik­il­vægi mála­flokks­ins.

Þá hef­ur Mos­fells­bær frá ár­inu 2023 tek­ið þátt í starfi Mark­aðs­stofu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem ann­ast verk­efni á sviði mark­aðs­setn­ing­ar ferða­þjón­ustu.

Gera má ráð fyr­ir að breyt­ing á nefnd­um hafi í för með sér sparn­að sem nemi um 18 m.kr. á árs­grund­velli.

Auk sam­ein­ingu nefnda hef­ur bæj­ar­ráð sam­þykkt að fækka áheyrn­ar­full­trú­um í nefnd­um bæj­ar­ins og frysta launa­hækk­an­ir bæj­ar­full­trúa og bæj­ar­stjóra. Laun bæj­ar­full­trúa verði af­tengd við þing­far­ar­kaup­ið sem mun hækka um 5,6% um mán­að­ar­mót­in og hækka þess í stað um 3,5% eins og á al­menn­um vinnu­mark­aði. Laun bæj­ar­stjóra eru mið­uð við launa­vísi­tölu og ættu að hækka um 8,2% þann 1. júlí en munu hækka um 3,5%. Þess­ar breyt­ing­ar munu skila lækk­un um 5 m.kr. á árs­grund­velli.

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00