Álagning fasteignagjalda 2019 hefur farið fram og má sjá forsendur útreikninga á vef Mosfellsbæjar.
Álagningarseðlar fasteignagjalda eru birtir rafrænt á upplýsinga- og þjónustuveitunni island.is og íbúagátt Mosfellsbæjar.
Fasteignagjöld skiptast á níu gjalddaga frá 15. janúar til 15. september. Eindagi fasteignagjalda er þrjátíu dögum eftir gjalddaga og fellur allur skattur ársins í gjalddaga ef vanskil verða. Sé fjárhæð fasteignagjalda undir kr. 40.000 er gjalddagi þeirra 15. janúar.
Fasteigagjöld má greiða með greiðsluseðlum sem jafnframt birtast meðal ógreiddra reikninga í heimabanka, með beingreiðslum, með boðgreiðslum og í þjónustuveri Mosfellsbæjar. Greiðsluseðlar eru almennt ekki sendir nema þess hafi verið óskað sérstaklega.
Þjónustuver Mosfellsbæjar veitir nánari upplýsingar og sendir þeim sem þess óska útprentaða álagningarseðla og greiðsluseðla.