Álagning fasteignagjalda 2016 hefur farið fram og má sjá forsendur útreikninga á vef Mosfellsbæjar.
Álagningarseðlar eru birtir rafrænt á island.is og íbúagátt Mosfellsbæjar.
Fasteignagjöld skiptast á níu gjalddaga frá 15. janúar til 15. september. Eindagi fasteignagjalda er þrjátíu dögum eftir gjalddaga og fellur allur skattur ársins í gjalddaga ef vanskil verða. Sé fjárhæð fasteignagjalda undir kr. 40.000 er gjalddagi þeirra 15. janúar.
Fasteignagjöld má greiða með greiðsluseðlum sem jafnframt birtast meðal ógreiddra reikninga í heimabanka, með beingreiðslum, með boðgreiðslum og í þjónustuveri Mosfellsbæjar að Þverholti 2, 2. hæð eða með símgreiðslu í síma 525-6700.
Greiðsluseðlar eru ekki sendir nema þess hafi verið óskað sérstaklega á íbúagátt Mosfellsbæjar eða í þjónustuveri. Þjónustuver Mosfellsbæjar veitir nánari upplýsingar og sendir þeim sem þess óska útprentaða álagningarseðla og greiðsluseðla.
Tengt efni
Aukin vetraropnun kaffistofu Samhjálpar
Neyðarkallinn til styrktar björgunarsveitinni Kyndli
Mosfellsbær styrkir Björgunarsveitina Kyndil með því að kaupa Neyðarkallinn 2024.
Bókun samtala hjá velferðarsviði