Mosfellsbær eykur aðgengi íbúa að persónulegum upplýsingum og birtir nú skjöl á Ísland.is, sem einstaklingar og fyrirtæki hafa aðgang að. Þar birtast nú útsend bréf, afgreiðslubréf byggingar- og skipulagsfulltrúa, álagningarseðlar, svarbréf frá velferðarsviði og fræðslu- og frístundasviði, launamiðar, launaseðlar starfsfólks og mál í grenndarkynningu. Stefnan er að öll skjöl frá Mosfellsbæ verði birt þar með tímanum.
Þegar skjöl eru birt í stafræna pósthólfinu teljast þau formlega birt, þar á meðal ákvarðanir, úrskurðir og tilkynningar. Forsjáraðilar hafa aðgang að gögnum barna yngri en 18 ára, nema þegar um er að ræða heilsu- eða dómsmál, sem eru aðeins aðgengileg til 16 ára aldurs.
Samkvæmt lögum eru opinberir aðilar, þar á meðal sveitarfélög, skyldugir til að miðla gögnum í gegnum stafrænt pósthólf. Með því verður til miðlæg og örugg leið til samskipta við opinbera aðila. Markmiðið er að bæta þjónustu, auka gagnsæi og tryggja hagkvæmni í stjórnsýslu.