Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
9. nóvember 2022

Fjár­hags­áætl­un Mos­fells­bæj­ar fyr­ir árið 2023 og næstu þrjú ár þar á eft­ir var lögð fram til fyrri um­ræðu í bæj­ar­stjórn í dag,  þann 9. nóv­em­ber.

  • Nýj­um lóð­um verð­ur út­hlut­að í 5. áfanga upp­bygg­ing­ar í Helga­fellslandi.
  • Fjár­fest verð­ur fyr­ir rúma fjóra millj­arða til að byggja upp inn­viði.
  • Áform­að er að A- og B-hluti verði rek­inn með 548 m.kr. af­gangi á næsta ári.
  • Veltu­fé frá rekstri verð­ur já­kvætt um 2.151 m.kr. eða 11% af heild­ar­tekj­um.
  • Álagn­ing­ar­hlut­fall fast­eigna­gjalda lækk­ar til að koma til móts við hækk­un fast­eigna­mats.
  • Skuld­ir sem hlut­fall af tekj­um munu lækka og skulda­við­mið­ið verð­ur 89,9%.
  • Álagn­ing­ar­hlut­fall út­svars verð­ur 14,52% en út­svar er um 52% af heild­ar­tekj­um sveit­ar­fé­lags­ins.
  • Hækk­un á gjald­skrám verð­ur hóf­leg og til sam­ræm­is við breyt­ing­ar á verð­lagi.
  • Íbú­ar eru um 13.300 og er ætl­uð fjölg­un um 2,5% á milli ára.

Fjár­hags­áætl­un árs­ins 2023 er fyrsta fjár­hags­áætl­un nýs meiri­hluta Fram­sókn­ar, Sam­fylk­ing­ar og Við­reisn­ar. Í henni er að finna áhersl­ur sem koma fram í málefna­samningi flokk­anna.

Af­gang­ur af rekstri Mos­fells­bæj­ar næst fram þrátt fyr­ir erfitt efna­hags­legt um­hverfi, aukn­ingu í þjón­ustu og mikl­ar fram­kvæmd­ir á næsta ári.

Rekstr­ar­um­hverfi sveit­ar­fé­laga er við­kvæmt, ekki síst vegna hækk­andi fjár­magns­kostn­að­ar og óvissu í kjara­mál­um

Heild­stæð upp­bygg­ing íþrótta­svæða og bú­setu­úr­ræði fyr­ir fatl­að fólk

Með­al áherslna á kjör­tíma­bil­inu er heild­stæð upp­bygg­ing íþrótta­svæða í bæj­ar­fé­lag­inu, um­fangs­mikl­ar stofn­fram­kvæmd­ir vegna fjölg­un­ar at­vinnu­lóða, aukn­ing á leik­skóla­pláss­um og bygg­ing bú­setu­úr­ræða fyr­ir fatl­að fólk. Enn­frem­ur er gert ráð fyr­ir stofn­fram­lög­um til óhagnaðar­drifinna fé­laga. Þá verð­ur unn­ið að því að Mos­fells­bær hljóti við­ur­kenn­ingu sem Barn­vænt sam­fé­lag á kjör­tíma­bil­inu.

Á næsta ári er gert ráð fyr­ir að öll börn fái þjón­ustu að loknu fæð­ing­ar­or­lofi for­eldra og gert er ráð fyr­ir efl­ingu heima­þjón­ustu fyr­ir eldri borg­ara. Þá er frí­stunda­þjón­usta við fötl­uð börn efld, sem og skamm­tíma­dvöl.

Á ár­inu 2023 verð­ur enn­frem­ur hald­ið áfram að inn­leiða far­sæld­ar­lög­in með Far­sæld­ar­hringn­um sem er sam­starfs­verk­efni vel­ferð­ar­sviðs og fræðslu- og frí­stunda­sviðs. Fjár­heim­ild­ir eru aukn­ar til stoð­þjón­ustu við börn í leik-og grunn­skól­um og ráð­gjafa­þjón­ustu við börn og fjöl­skyld­ur.

Fjár­fest­ing­ar í skól­um og inn­við­um at­vinnusvæð­is á landi Blikastaða

Fjár­fest­ing­ar árs­ins 2023 ein­kenn­ast af mörg­um verk­efn­um en þar bera hæst end­ur­bæt­ur á Kvísl­ar­skóla og lok­ið verð­ur við bygg­ingu íþrótta­húss við Helga­fells­skóla auk vinnu við end­ur­bæt­ur íþrótta­valla á Varmár­svæð­inu.

Kom­ið verð­ur á fót nýj­um leik­skóla­rým­um en mik­il fjölg­un er í hópi leik­skóla­barna í Mos­fells­bæ sam­hliða upp­bygg­ingu nýrra hverfa.

Í tengsl­um við fyr­ir­hug­aða upp­bygg­ingu at­vinnusvæð­is á Blika­stöð­um er gert ráð fyr­ir um­fangs­mikl­um fram­kvæmd­um við stofn­lagn­ir vatns-, hita- og frá­veitu ásamt raf- og fjar­skipta­lögn­um. Þá verð­ur unn­ið að frek­ari stefnu­mörk­un á sviði at­vinnu­mála.

Á næsta ári lýk­ur end­ur­skoð­un að­al­skipu­lags Mos­fells­bæj­ar og vinna haf­in við for­gangs­röð­un og gerð ramma­skipu­lags mögu­legra upp­bygg­inga­svæða.

Tengt efni