Sigrún Hjálmtýsdóttir ásamt blásarasextett, í daglegu tali Diddú og drengirnir, halda sína árlegu aðventutónleika í Mosfellskirkju þriðjudaginn 7. desember kl. 20:30.
Efnisskráin er með hefðbundnum hætti, klassískir tónar og jólalög.
Aðventutónleikar Diddúar og drengjanna eru sérstakur tónlistarviðburður í menningarlífi Mosfellsbæjar en tónleikarnir eru nú haldnir þrettánda árið í röð. Á tónleikunum hafa frá upphafi verið frumfluttar umskriftir á klassískum verkum fyrir blásarasextett og sópran en þetta er ekki algeng samsetning hljóðfæra og raddar.
Margir Mosfellingar auk annarra hafa árvisst sótt litlu sveitakirkjuna í Mosfellsdal heim að þessu tilefni enda eru tónleikarnir í Mosfellskirkju á jólaföstu orðnir ómissandi hluti af undirbúningi fyrir helgihald jóla.
Hljóðfæraleikarar eru Sigurður Ingvi Snorrason og Kjartan Óskarsson, sem leika á klarinettur, Emil Friðfinnsson og Þorkell Jóelsson sem leika á horn og á fagott leika Brjánn Ingason og Björn Árnason.
Miðasala verður í þjónustuveri Mosfellsbæjar. Þar er hægt að kaupa miða í forsölu frá 1. desember en einnig er hægt að greiða miðana símleiðis. Vinsamlega hafið samband við þjónustuverið í síma 525-6700 þar sem miðasala fer fram og allar aðrar upplýsingar um miðasöluna eru veittar.
Tengt efni
Ljósin tendruð á jólatrénu á Miðbæjartorgi 2. desember 2023
Tendrun ljósanna á jólatrénu á Miðbæjartorginu hefur um árabil markað upphaf jólahalds í bænum.
Sköpum rými
Opinn fundur menningar- og lýðræðisnefndar um rými fyrir sköpun og miðlun menningar í Mosfellsbæ verður haldinn í Hlégarði þriðjudaginn 28. nóvember.
Grindvíkingum boðið á jólatónleika í Hlégarði
Tónlistarkonan Greta Salóme í samstarfi við Mosfellsbæ ætla að bjóða Grindvíkingum á jólatónleika í félagsheimili Mosfellinga, Hlégarði, sunnudaginn 17. desember kl. 17:00.