Aðventutónleikar Diddúar og drengjanna hafa verið sérstakur tónlistarviðburður í menningarlífi Mosfellsbæjar í tvo áratugi. Á tónleikunum hafa frá upphafi verið frumfluttar umskriftir á klassískum verkum fyrir blásarasextett og sópran, en þetta er ekki algeng samsetning hljóðfæra og radda.
Margir Mosfellingar og gestir hafa árvisst sótt litlu sveitakirkjuna í Mosfellsdal heim af þessu tilefni enda eru tónleikar í Mosfellskirkju á jólaföstu orðnir ómissandi hluti af undirbúningi fyrir helgihald jóla.
Sigrún Hjálmtýsdóttir ásamt blásarasextett. Hljóðfæraleikarar eru Sigurður Ingvi Snorrason og Kjartan Óskarsson sem leika á klarínettur, Emil Friðfinnsson og Þorkell Jóelsson sem leika á horn og á fagott leika Brjánn Ingason og Björn Th. Árnason.
Miðasala fer fram við inngang. Aðgangseyrir 3.000 kr.
Tengt efni
Ljósin tendruð á jólatrénu á Miðbæjartorgi 2. desember 2023
Tendrun ljósanna á jólatrénu á Miðbæjartorginu hefur um árabil markað upphaf jólahalds í bænum.
Sköpum rými
Opinn fundur menningar- og lýðræðisnefndar um rými fyrir sköpun og miðlun menningar í Mosfellsbæ verður haldinn í Hlégarði þriðjudaginn 28. nóvember.
Grindvíkingum boðið á jólatónleika í Hlégarði
Tónlistarkonan Greta Salóme í samstarfi við Mosfellsbæ ætla að bjóða Grindvíkingum á jólatónleika í félagsheimili Mosfellinga, Hlégarði, sunnudaginn 17. desember kl. 17:00.