Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
24. ágúst 2018

Að­al­skipu­lags­breyt­ing í landi Dallands í suð­ur­hluta Mos­fells­bæj­ar og deili­skipu­lag fyr­ir jörð­ina Dal­land.

Kynn­ing á verk­efn­is­lýs­ing­um: Að­al­skipu­lags­breyt­ing í landi Dallands í suð­ur­hluta Mos­fells­bæj­ar og deili­skipu­lag fyr­ir jörð­ina Dal­land.

Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með til kynn­ing­ar tvær verk­efn­is­lýs­ing­ar skv. 30.gr. og 40.gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010:

Fyr­ir breyt­ingu á að­al­skipu­lagi Mos­fells­bæj­ar 2011-2030 svæði fyr­ir frí­stunda­byggð í suð­ur­hluta Mos­fells­bæj­ar. Mos­fells­bær áform­ar að breyta land­notk­un á tveim­ur skik­um, (125203 og 125372) vest­an Dals í landi Dallands úr svæði fyr­ir frí­stunda­byggð (F) í land­bún­að­ar­svæði (L). Til­efni að­al­skipu­lags­breyt­ing­ar­inn­ar eru áform land­eig­anda Dallands sem rek­ur um­fangs­mikla land­bún­að­ar­starf­semi að reisa ráðs­manns­hús ásamt tveim­ur öðr­um starf­manna­hús­um í góð­um tengsl­um við starf­sem­ina á jörð­inni.

Fyr­ir gerð deili­skipu­lags yfir jörð­ina Dal­land í Mos­fells­sveit og lönd sem til­heyra henni. Jörð­in ligg­ur sunn­an og norð­an við Hafra­vatns­veg og sunn­an við Nesja­valla­veg. Meg­in við­fangs­efni við deili­skipu­lags­gerð­ina er m.a. að skil­greina að­komu og bygg­ing­areiti fyr­ir­liggj­andi og vænt­an­legra bygg­inga í tengsl­um við fyr­ir­hug­að­ar fram­kvæmd­ir á jörð­inni.

Í verk­efna­lýs­ing­um kem­ur lög­um sam­kvæmt fram hvaða áhersl­ur sveit­ar­stjórn hef­ur við skipu­lags­gerð­ina og upp­lýs­ing­ar um for­send­ur og fyr­ir­liggj­andi stefnu og fyr­ir­hug­að skipu­lags­ferli, s.s. um kynn­ingu og sam­ráð gagn­vart íbú­um og öðr­um hags­muna­að­il­um. Þeir sem vilja kynna sér mál­ið nán­ar vin­sam­leg­ast haf­ið sam­band við skipu­lags­full­trúa. Verk­efna­lýs­ing ligg­ur frammi í þjón­ustu­veri Mos­fells­bæj­ar á 2. hæð Þver­holts 2, 270 Mos­fells­bæ og á vef bæj­ar­ins.

At­huga­semd­um og ábend­ing­um varð­andi lýs­ing­una skulu vera skrif­leg­ar og má skila þeim til skipu­lags­full­trúa Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 270 Mos­fells­bæ, eða í tölvu­pósti til und­ir­rit­aðs. Æski­legt er að þær ber­ist fyr­ir miðj­an sept­em­ber 2018.

28. ág­úst 2018
Skipu­lags­full­trúi Mos­fells­bæj­ar

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00