Aðalheiður hefur verið í hestum alla sína ævi og unnið við tamningar og þjálfun í fjölda ára.
Hún hefur alltaf verið í hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ.
Árangurinn á árinu var mjög góður, en hún varð Íslandsmeistari í gæðingaskeiði meistara, fyrst kvenna, og var oft í efstu sætum á hinum ýmsu mótum á árinu í mismunandi greinum, ásamt því að ná gríðarlega góðum árangri með kynbótahross á árinu.
Tengt efni
Mosfellingur tvöfaldur heimsmeistari
Benedikt Ólafsson 19 ára Mosfellingur var valinn úr stórum hópi Landsliðs Íslands í hestaíþróttum til að taka þátt í Heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem fram fór í Hollandi í sumar.
Hestamenn bjóða heim 1. maí 2018
Opið hús á degi íslenska hestsins – Hestamannafélagið Hörður býður bæjarbúa velkomna á opið hús í reiðhöll félagsins að Varmárbökkum þriðjudaginn 1. maí kl. 15:00.
Reynir Örn Pálmason - Hestaíþróttamaður Harðar 2017
Reynir hefur verið í hestum alla tíð og unnið við greinina í fjölda ára.