Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
15. apríl 2024

Árs­reikn­ing­ur Mos­fells­bæj­ar fyr­ir árið 2023 var lagð­ur fram á fundi bæj­ar­ráðs í dag, mánu­dag­inn 15. apríl 2024. Rekstr­arnið­ur­stað­an er já­kvæð um 341 millj­ón.

Rekst­ur­inn er í góðu sam­ræmi við fjár­hags­áætlun en árið ein­kennd­ist af mikl­um fram­kvæmd­um, með­al ann­ars bygg­ingu nýs leik­skóla, end­ur­bót­um á Kvísl­ar­skóla, bygg­ingu íþrótta­húss og gatna­gerð. Þá tók Mos­fells­bær yfir rekst­ur Skála­túns, heim­il­is fyr­ir fatl­aða íbúa þann 1. júlí 2023 en á Skála­túni búa 32 íbú­ar og starfs­menn eru 110 í 70 stöðu­gild­um.

Tekj­ur árs­ins námu alls 20.305 millj­ón­um, launa­kostn­að­ur 9.466 millj­ón­um, hækk­un líf­eyr­is­skuld­bind­inga 433 millj­ón­um og ann­ar rekstr­ar­kostn­að­ur var 7.721 millj­ón­ir og nem­ur fram­legð því 2.684 millj­ón­um. Af­skrift­ir voru 590 millj­ón­ir og nam rekstr­arnið­ur­staða fyr­ir fjár­magnsliði 2.095 millj­ón­um. Fjár­muna­tekj­ur, fjár­magns­gjöld og tekju­skatt­ur námu 1.733 millj­ón­um og var rekstr­arnið­ur­staða árs­ins því já­kvæð um 341 millj­ón. Veltufé frá rekstri var 1.935 millj­ón­ir eða 9,5% af tekj­um.

Eig­ið fé í árslok nam 7.757 millj­ón­um og eig­in­fjár­hlut­fall­ið er 24,3%. Skulda­við­mið er 94,5% og er því vel inn­an þess 150% há­marks sem kveð­ið er á um í lög­um.

Kostn­að­ur vegna verð­bóta nam 1.285 millj­ón­um eða 330 millj­ón­um meira en gert var ráð fyr­ir í fjár­hags­áætlun. Þá nam kostn­að­ur vegna hækk­un­ar líf­eyr­is­skuld­bind­inga 433 millj­ón­um.

Íbú­ar Mos­fells­bæj­ar voru 13.403 þann 1. janú­ar 2024. Mos­fells­bær er sem fyrr sjö­unda fjöl­menn­asta sveit­ar­fé­lag lands­ins og þar störf­uðu 945 starfs­menn í 782 stöðu­gild­um í árslok 2023.

Fræðslu- og upp­eld­is­mál eru um­fangs­mesti mála­flokk­ur­inn og til hans var var­ið 8.066 millj­ón­um eða 51,5% skatt­tekna. Til fé­lags­þjón­ustu var veitt 3.434 millj­ón­um eða 21,9% skatt­tekna og eru þar með talin fram­lög vegna mál­efna fatl­aðs fólks. Loks eru íþrótta- og tóm­stund­ar­mál þriðja um­fangs­mesta verk­efni bæj­ar­ins og til þeirra var ráð­stafað um 1.722 millj­ón­um eða 10,9% skatt­tekna.

Árs­reikn­ing­ur­inn verð­ur tek­inn til fyrri um­ræðu í bæj­ar­stjórn þann 24. apríl 2024 og gert er ráð fyr­ir því að seinni um­ræða í bæj­ar­stjórn fari fram þann 8. maí.

,,Árs­reikn­ing­ur­inn sýn­ir sterka stöðu sveit­ar­fé­lags­ins en skulda­við­mið­ið er að lækka úr 104,4 % í 94,5 % á milli ára. Á sama tíma erum við vissu­lega að kljást við verð­bólgu og háa vexti sem er áskor­un fyr­ir sveit­ar­fé­lag í örum vexti. Við leggj­um áherslu á að veita góða þjón­ustu og við erum með einna lægstu gjöld­in þeg­ar kem­ur að þjón­ustu við barna­fjöl­skyld­ur“ seg­ir Regína Ás­valds­dótt­ir bæj­ar­stjóri Mos­fells­bæj­ar.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00