Að þessu sinni verður 3. Landsmót UMFÍ 50+ haldið dagana 7. – 9. júní 2013 í Vík í Mýrdal.
Fyrsta mótið var haldið á Hvammstanga 2011 og í sumar sem leið var annað mótið haldið í Mosfellsbæ og tókst einstaklega vel.
Mótið er sérstaklega ætlað fólki 50 ára og eldra. Framkvæmd mótsins er í höndum Ungmennafélags Íslands og Ungmennasambands Vestur Skaftafellssýslu, í samstarfi við Mýrdalshrepp.
Mótið er íþrótta- og heilsuhátíð þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í þeim fjölmörgu greinum sem í boði eru. Fyrirhugaðar keppnisgreinar eru Frjálsar, sund, boccia, golf, pútt, skák, bridds, starfsíþróttir, Ringó, hestaíþróttir, línudans, sýningarhópar, þríþraut, almenningshlaup, hjólreiðar.
Landsmót UMFÍ 50+ er tilvalinn vettvangur til að hittast, etja kappi og eiga góða stund saman.
Tengt efni
80 ára lýðveldisafmæli fagnað á 17. júní 2024
Að vanda var haldið upp á þjóðhátíðardaginn með glæsibrag í Mosfellsbæ.
Birgir D. Sveinsson heiðursborgari Mosfellsbæjar
Hátíðarhöld í Mosfellsbæ 17. júní 2024
Hæ hó jibbý og jei!