Tillaga að deiliskipulagi 24-ra frístundalóða norðan og vestan Selvatns. Athugasemdafrestur til 15. júlí 2010.
Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi frístundabyggðar norðan og vestan Selvatns. Skipulagssvæðið er upphaflega úr landi Miðdals, um 24 ha að stærð. Í tillögunni er svæðinu skipt upp í 24 lóðir frá 0,5 til 1,23 ha að stærð, og þrjá skika sem verða óskipt sameign. Á hverri lóð verði heimilt að byggja sumarhús allt að 110 m2 að stærð auk 20 m2 geymsluhúss. Kveðið er á um að óheimilt sé að gróðursetja hávaxnar trjátegundir innan 50 m frá vatninu og kvöð er sett um opna gönguleið eftir ströndinni.
Athugasemdir þurfa að vera skriflegar og skal senda þær til skipulags- og byggingarnefndar Mosfellsbæjar eigi síðar en 15. júlí 2010. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við auglýsta tillögu innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
28. maí 2010,
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
Tengt efni
Grenndarkynning vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Engjaveg 22
Á fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 11. maí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu varðandi Engjaveg 22.
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við atvinnuhúsnæði að Flugumýri 6
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 3. maí 2023 sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, byggingarleyfisumsókn eigenda atvinnuhúsnæðis að Flugumýri 6, 0104.
Nýjar deiliskipulagsáætlanir - Frístundalóðir milli Selvatns og Nesjavallavegar
Mosfellsbær auglýsir nú skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eftirfarandi tillögur að deiliskipulagsáætlunum: