Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
14. desember 2021

Fjár­hags­áætlun Mos­fells­bæj­ar fyr­ir árið 2022 og næstu þrjú ár þar á eft­ir var sam­þykkt í bæj­ar­stjórn þann 8. des­em­ber 2021.

  • Áform­að er að bæj­ar­sjóð­ur verði rek­inn með 203 m.kr. af­gangi á næsta ári.
  • Gert er ráð fyr­ir af­gangi af rekstr­in­um þrátt fyr­ir að lagt sé til að bæði leik­skóla­gjöld og álagn­ingar­pró­sent­ur fast­eigna­gjalda lækki.
  • Veltufé frá rekstri verð­ur já­kvætt um 1.476 m.kr. eða 9,5% af heild­ar­tekj­um.
  • Fram­kvæmt verð­ur fyr­ir um þrjá millj­arða til að byggja upp inn­viði og efla sam­fé­lag­ið.
  • Skuld­ir sem hlut­fall af tekj­um munu lækka og skulda­við­mið­ið verð­ur 100,2% af tekj­um í árslok.
  • Álagn­ing­ar­hlut­fall út­svars verð­ur 14,48% sem er und­ir leyfi­legu há­marki.
  • Íbú­ar eru 13.000 og mun fjölga um allt að 3,5% á næsta ári.

Fjár­hags­áætlun Mos­fells­bæj­ar fyr­ir árið 2022 og næstu þrjú ár þar á eft­ir var sam­þykkt í bæj­ar­stjórn þann 8. des­em­ber 2021.

Fjár­hags­áætlun árs­ins 2022 ber því merki auk­inna efna­hags­legra um­svifa eft­ir það högg sem heims­far­ald­ur kór­óna­veirunn­ar er og þeirr­ar við­spyrnu sem Mos­fells­bær hef­ur náð með ráð­deild í rekstri. Ráð­deild­in hef­ur beinst að því að tryggja óbreytta eða aukna þjón­ustu auk áfram­hald­andi upp­bygg­ingu inn­viða án þess að ganga of langt í lán­töku. Þá end­ur­spegl­ar áætlun næsta árs vel þá stað­reynd að sveit­ar­fé­lag­ið hef­ur burði til að mæta fjár­hags­leg­um áföll­um síð­ustu tveggja ára.

Har­ald­ur Sverris­son, bæj­ar­stjóri:

„Markmið okk­ar í Mos­fells­bæ við upp­haf heims­far­ald­urs­ins var að ná við­spyrnu og verja þjón­ustu við íbúa. Fjár­hags­áætlun árs­ins 2022 ber þess skýr merki að þeim mark­mið­um er náð sem end­ur­spegl­ar í senn sterka stöðu sveit­ar­fé­lags­ins til að mæta tíma­bundn­um fjár­hags­leg­um áföll­um og getu starfs­fólks til að stýra starf­sem­inni með far­sæl­um hætti. Skýr stefna og skil­virk fram­kvæmd henn­ar eru þau tæki sem við höf­um nýtt til þess að ná okk­ar mark­mið­um. Á síð­ustu tveim árum hafa minnk­andi skatt­tekj­ur og auk­inn rekstr­ar­kostn­að­ur vegna far­ald­urs­ins haft mjög nei­kvæð áhrif á af­komu sveit­ar­fé­laga. Í fjár­hags­áætlun árs­ins 2022 er gert ráð fyr­ir um 203 m.kr. af­gangi af rekstri sveit­ar­fé­lags­ins. Þessi ár­ang­ur næst ekki fyr­ir til­vilj­un held­ur vegna þess að starfs­fólki und­ir for­ystu bæj­ar­stjórn­ar hef­ur tek­ist að laga rekst­ur sveit­ar­fé­lags­ins að breyttu fjár­hags­legu um­hverfi án þess að skerða þjón­ustu og jafn­framt hef­ur ver­ið bætt í þjón­ust­una í nokkr­um til­fell­um.

Ég vil leyfa mér að taka bygg­ingu Helga­fells­skóla, sem nú er komin í rekst­ur, sem dæmi um ráð­deild en skól­inn var af­hent­ur á rétt­um tíma og kostn­að­ur­inn var 2% und­ir kostn­að­ar­áætlun. Slík­ur ár­ang­ur næst ekki af sjálfu sér og ligg­ur ekki hjá ein­um ein­stak­lingi held­ur vaskri sveit starfs­manna og stjórn­enda.

Starf­semi Mos­fells­bæj­ar geng­ur vel, íbú­um held­ur áfram að fjölga þó svo að hægt hafi á vext­in­um og starfs­menn standa vakt­ina sama á hverju dyn­ur. Sam­staða ein­kenn­ir sam­fé­lag okk­ar Mos­fell­inga og íbú­ar eru sam­kvæmt könn­un­um ánægð­ir með þá þjón­ustu sem bær­inn veit­ir. Allt eru þetta þætt­ir sem skiptu sköp­um við þær að­stæð­ur sem nú ríkja í sam­fé­lag­inu.“

Helstu áhersl­ur í fjár­hags­áætlun 2022 eru:

  • Að af­gang­ur verði af rekstri bæj­ar­ins þrátt fyr­ir að tekj­ur hafi lækkað vegna kór­óna­veirufar­ald­urs­ins.
  • Að álagn­ing­ar­hlut­föll fast­eigna­gjalda á íbúð­ar­hús­næði og at­vinnu­rekst­ur lækki.
  • Að nýj­um lóð­um í Helga­fells­hverfi og á mið­bæj­ar­svæði verði út­hlutað fyr­ir fjöl­breytt­ar íbúð­ar­gerð­ir.
  • Að gjald­skrár breyt­ist í sam­ræmi við breyt­ing­ar á verð­lagi og hækki því ekki að raun­gildi. Leik­skóla­gjöld lækki um 5%.
  • Að hafin verði bygg­ing nýs leik­skóla í Helga­fells­hverfi og íþrótta­húss við Helga­fells­skóla.
  • Að hafin verði bygg­ing þjón­ustu­bygg­ing­ar við íþróttamið­stöð­ina að Varmá.
  • Að dag­vist­un­ar­gjöld allra barna frá 12 mán­aða aldri verði þau sömu óháð vist­un­ar­formi.
  • Að fé­lags­leg­um íbúð­um fjölgi.
  • Að hafn­ar verði fram­kvæmd­ir við stækk­un hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins Hamra.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar veita:
Har­ald­ur Sverris­son bæj­ar­stjóri í síma 525-6700, har­ald­ur@mos.is
Arn­ar Jóns­son, for­stöðu­mað­ur þjón­ustu- og sam­skipta­deild­ar, s. 840-1244, arn­ar@mos.is

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00