Tillaga að breytingu á II áfanga Helgafellshverfis sem felst í því að Brúnás er látinn tengjast Ásavegi, í stað þess að sveigja upp með honum til norðurs.
Tillaga að breytingum á deiliskipulagi
Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi annars áfanga Helgafellshverfis, sem samþykkt var 13.12.2006 og síðast breytt 17.07.2008.
Í tillögunni felst, að legu Brúnáss er breytt og hann látinn tengjast Ásavegi með T-gatnamótum, en samkvæmt gildandi skipulagi átti Brúnás að sveigja til norðurs og liggja meðfram Ásavegi. Markmið með breytingunni er aðallega að bæta tengingu Ásahverfis við gatnakerfið, en einnig að uppfylla ákvæði lóðarsamnings um að aflétta skerðingu á lóðinni Fellsási 2.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eigi síðar en 30. apríl 2012.
13. mars 2012,
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar