Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
27. nóvember 2020

Fjár­hags­áætlun Mos­fells­bæj­ar fyr­ir árið 2021 og næstu þrjú ár þar á eft­ir var lögð fram til fyrri um­ræðu í bæj­ar­stjórn þann 25. nóv­em­ber.

„Fjár­hags­áætlun árs­ins 2021 er unn­in í skugga heims­far­ald­urs en end­ur­spegl­ar um leið sterka stöðu sveit­ar­fé­lags­ins til að mæta tíma­bundn­um fjár­hags­leg­um áföll­um. Minnk­andi skatt­tekj­ur og auk­inn rekstr­ar­kostn­að­ur vegna kór­óna­veirunn­ar hef­ur nei­kvæð áhrif á af­komu sveit­ar­fé­laga. Í fjár­hags­áætlun árs­ins 2021 er gert ráð fyr­ir um 567 m.kr. halla á rekstri sveit­ar­fé­lags­ins. Efna­hags­leg áhrif far­ald­urs­ins eru það mik­il á rekst­ur sveit­ar­fé­lags­ins að óhjá­kvæmi­legt er ann­að en að bæj­ar­sjóð­ur verði rek­inn með halla. Hinn mögu­leik­inn hefði ver­ið að skera veru­lega nið­ur í rekstri og þjón­ustu sveit­ar­fé­lags­ins. Það er ekki skyn­sam­leg stefna við ríkj­andi að­stæð­ur og ég tel að okk­ur hafi tek­ist að verja þjón­ustu við íbúa. Mos­fells­bær býr að því að hafa ver­ið með góð­an og ábyrg­an rekst­ur und­an­farin ár og því hægt að reka bæj­ar­sjóð með halla til skamms tíma þó að það leiði óhjá­kvæmi­lega til auk­inn­ar skuld­setn­ing­ar,“ seg­ir Har­ald­ur Sverris­son bæj­ar­stjóri.

Helstu nið­ur­stöð­ur fjár­hags­áætl­un­ar 2021:

  • Rekstr­arnið­ur­staða nei­kvæð um 567 m.kr.
  • Skulda­við­mið við árslok 113,3%.
  • Áætlað veltufé frá rekstri verð­ur já­kvætt um 486 m.kr. eða tæp­lega 3,7% af heild­ar­tekj­um.
  • Út­svars­pró­senta óbreytt eða 14,48% af út­svars­stofni.
  • Tekj­ur verði 13.307 m.kr.
  • Gjöld án fjár­magnsliða 12.673 m.kr.
  • Fjár­magnslið­ir 686 m.kr.
  • Fyr­ir­hug­að er að fram­kvæma fyr­ir 2.560 m.kr. sem að mestu renn­ur til skóla-, gatna- og veitu­mann­virkja.
  • Gert er ráð fyr­ir að íbú­um fjölgi um rúm­lega 4,4% milli ára, en þeir eru nú um 12.600.
  • Hóf­leg hækk­un gjald­skráa til sam­ræm­is við stefnu­mörk­un lífs­kjara­samn­ing­anna.
  • Leik­skóla­gjöld lækka um 5%.

Stefnu­mörk­un til fram­tíð­ar

Vinnu við lýð­heilsu- og for­varn­ar­stefnu Mos­fells­bæj­ar mun ljúka á næsta ári en stefn­an ligg­ur nú til um­sagn­ar í drög­um á sam­ráðs­gátt und­ir vinnu­heit­inu Okk­ar heilsu Mosó. Við end­ur­skoð­un á skóla­stefnu verð­ur lit­ið til þess að breikka skír­skot­un­ina og líta á mennt­un í heild og að stefn­an kall­ist mennta­stefna. Loks mun Mos­fells­bær vinna að því á næsta ári að verða barn­vænt sveit­ar­fé­lag og inn­leiða þann­ig barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Þjón­usta varin í skugga heims­far­ald­urs

Heims­far­ald­ur­inn hef­ur skap­að tæki­færi til að nýta bet­ur ra­f­ræn­ar lausn­ir við úr­lausn dag­legra verk­efna og þjón­ustu við íbúa. Áfram verð­ur unn­ið að verk­efn­um sem miða að því að gera þjón­ustu Mos­fells­bæj­ar skil­virk­ari, að­gengi­legri fyr­ir alla og nýta til þess snjall­ar lausn­ir.

Aukn­ing verð­ur á nýj­um pláss­um á leik­skól­um fyr­ir 12-18 mán­aða börn og er gert ráð fyr­ir að fjölga þeim um 30 á ár­inu 2021. Þá verð­ur sem fyrr veru­leg­um fjár­mun­um var­ið til upp­lýs­inga- og tækni­mála og bættr­ar að­stöðu í grunn­skól­um bæj­ar­ins.

Á sviði fjöl­skyldu­mála er gert ráð fyr­ir veit­ingu fimm stofn­lána vegna und­ir­bún­ings við bygg­ingu á nýj­um bú­setukjarna fyr­ir fatlað fólk. Einn­ig er gert ráð fyr­ir að stuðn­ings­þjón­usta hjá sveit­ar­fé­lag­inu verði efld og hug­að að ákveð­inni end­ur­skipu­lagn­ingu í starf­semi bú­setu­þjón­ustu fyr­ir fatlað fólk.

Á sviði menn­ing­ar­mála felst stærsta ein­staka verk­efn­ið í end­ur­bót­um á innra rými Hlé­garðs þar sem hús­ið verð­ur fært nær upp­runa­legu horfi og hús­ið nýtt sem meg­in­vett­vang­ur menn­ing­ar­starf­semi í bæn­um.

Unn­ið verð­ur að end­ur­skoð­un að­al­skipu­lags bæj­ar­ins og næstu skref stig­in í lýð­ræð­is­verk­efn­inu Okk­ar Mosó 2021 þar sem kallað verð­ur eft­ir til­lög­um íbúa að verk­efn­um. Vinnu við seinni tvo áfanga Helga­fells­skóla lýk­ur á næsta ári og und­ir­bún­ing­ur hefst að bygg­ingu nýs leik­skóla í Helga­fells­hverfi.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00