Þann 16. ágúst 2015 mun ný vetraráætlun Strætó taka gildi á höfuðborgarsvæðinu.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- Leiðir 2, 5, 11, 12, 13, 14, 15, 18, 24, 28, 35 fara yfir á korters tíðni á annatíma
- Leið 1 – Fastur aukavagn verður kl. 7:50 frá Firði að Hlemmi á virkum dögum
- Aukavagnar á leiðum 1 og 6 seinnipartinn á virkum dögum munu hefja ferð sína einu stoppi fyrr, eða hjá Ráðhúsinu áður en þeir fara í HÍ
- Leið 15 – Biðstöðin við Reykjaveg í Mosfellsbæ mun færast við endann á Reykjaveginum
Vetraráætlun Strætó tekur gildi eftirtalda daga:
- Höfuðborgarsvæðið 16. ágúst
- Suðurnes 16. ágúst
- Norður og Norðausturland 30. ágúst
- Suðurland 13. september
- Vestur- og Norðurland 13. september