Endurgerð lóðar við Lágafellsskóla
Endurgerð á yfirborði, malbikun, hellulögn og gróðurfrágangur ásamt uppsetning leiktækja.
Endurgerð lóðar við Varmárskóla
Endurnýjun yfirborðs og hellulögn við eldri deild Varmárskóla ásamt uppsetningu leiktækja.
Um er að ræða tvö óháð verk sem boðin eru út á sama tíma. Leiktæki og leiksvæði á báðum lóðum skulu vera frágengin 15. ágúst 2014 en annar frágangur 25. september 2014.
Rafræn útboðsgögn á diski fást án endurgjalds í Þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2, frá og með miðvikudeginum 18. júní 2014.
Tilboð í bæði verkin verða opnuð þann 1. júlí nk. kl. 11 á bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Tengt efni
Útboð: Varmárskóli – Endurbætur á lóð, áfangi 1
Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið Varmárskóli – endurbætur á lóð, 1. áfangi.
Leikskóli Helgafellslandi – Uppsteypa og fullnaðarfrágangur
VSÓ Ráðgjöf ehf, fyrir hönd Mosfellsbæjar, óskar eftir tilboðum í verkið Uppsteypa og fullnaðarfrágangur vegna nýs leikskóla í Helgafellshverfi.
Útboð: Rafhleðslustöðvar í Mosfellsbæ - Hverfahleðslustöðvar rafmagnsbifreiða
Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: 202202023 Rafhleðslustöðvar í Mosfellsbæ.