Mosfellsbær óskar eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í útboði vegna 2 áfanga lóðarframkvæmda við Varmárskóla í Mosfellsbæ.
Verkefnið felst í að setja leiktæki saman og niður, fallvarnarefni, gervigras, hellulögn, lýsing og tilfallandi yfirborðsfrágang.
Helstu magntölur eru eftirfarandi:
- Upptaka á yfirborðsefnum 552 m²
- Ljósastaurar 4 stk
- Hellur 268 m²
- Malbik 157 m²
- Gúmmíhellur 110 m²
- Gervigras 195 m²
- Grasþökur 304 m²
- Uppsettning á leiktækjum 4 stk
Óska skal eftir útboðsgögnum í tölvupósti í gegnum mos@mos.is frá og með kl. 14:30 þann 12. maí 2025.
Tilboðum skal skila á mos@mos.is eigi síðar en kl. 10:00 föstudaginn 28. maí 2025.
Ekki verður haldinn opnunarfundur en niðurstöður verða sendar bjóðendum og birtar á vef Mosfellsbæjar að opnun lokinni.