Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
11. janúar 2024

Í gær 10. janú­ar var und­ir­rit­að­ur samn­ing­ur milli Mos­fells­bæj­ar og fyr­ir­tæk­is­ins Vargs ehf um bygg­ingu á nýj­um upp­hit­uð­um sparkvelli á skóla­lóð Varmár­skóla sem er fyrsti hluti af end­ur­bót­um á lóð skól­ans.

Þeg­ar hug­mynda­vinna við nýja skóla­lóð hófst var kallað eft­ir til­lög­um frá nem­end­um og voru flest sem ósk­uðu eft­ir sparkvelli. Hönn­uði var svo fal­ið að vinna með til­lögu nem­enda og var nið­ur­stað­an kynnt fyr­ir þeim síð­ast­lið­ið haust.

Fram­kvæmd­in fel­ur í sér að koma upp upp­hit­uð­um sparkvelli að stærð 18x33m ásamt stálrimlagirð­ingu um­hverf­is völl­inn, hellu­lögn og ljósastaur­um. Áætlað er að fram­kvæmd­ir hefj­ist á næstu vik­um og verklok verði í lok júlí 2024.


Mynd 1
Aft­ari röð: Kristján Gísli Stein­ars­son Bech nem­andi í 6. bekk, Jóna Bene­dikts­dótt­ir skóla­stjóri Varmár­skóla og Ragn­heið­ur Anna Árna­dótt­ir nem­andi í 6. bekk.

Fremri röð: Hild­ur Haf­bergs­dótt­ir verk­efna­stjóri við­halds og að­geng­is, Regína Ás­valds­dótt­ir bæj­ar­stjóri, Hlyn­ur Grét­ars­son Varg­ur ehf. og Sveinn Áki Gíslason Varg­ur ehf.

Mynd 2
Regína ásamt Kristjáni Gísla og Ragn­heiði Önnu.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00