Mánudagskvöldið 19. júlí og aðfaranótt þriðjudags 20. júlí er stefnt á að malbika hringtorg á Vesturlandsvegi við Skarhólabraut.
Vesturlandsvegi verður lokað á milli Úlfarsfellsvegar og Reykjavegar og verður hjáleið um Úlfarsfellsveg, Hafravatnsveg og Reykjaveg. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 22:00 til kl. 06:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.